Einstök stemmning og samstaða í Bleiku boði Sigurvonar

 

Bleikt boð Sigurvonar fór fram með miklum glæsibrag í Edinborgarsalnum á Ísafirði í gærkvöldi. Viðburðurinn er haldinn annað hvert ár og er bæði ætlaður til að þakka hlýhug samfélagsins ásamt því að vekja fólk til umhugsunar um krabbamein og þannig styðja við og létta lífið fyrir fólk sem glímir við sjúkdóminn. Salurinn var þéttskipaður fólki sem vildi sýna samstöðu í verki.

Eyþór Bjarnason sýndi mikla snilld sem veislustjóri kvöldsins og hélt utan um dagskrána af mikilli alúð og léttleika. Gestir boðsins fengu fljótlega að njóta ljúfra tóna þegar Skúli mennski steig á svið og lék nokkur lög sem settu strax rétta tóninn fyrir kvöldið með miklum hlátrasköllum og lófaklappi.

Hápunktur kvöldsins var þó sá hluti dagskrárinnar þar sem Freygerður Ólafsdóttir steig fram og deildi reynslusögu sinni af krabbameini. Sagan var í senn hjartnæm og hvetjandi og snerti alla djúpt í salnum.

Einnig fóru fram hátíðlegar viðurkenningar þar sem Martha Kristín Pálmadóttir, formaður Sigurvonar, var sæmd Heiðursslaufunni að þessu sinni. Hún hlýtur þessa virtu viðurkenningu fyrir óeigingjarnt og ötult starf sitt í þágu félagsins á undanförnum árum.

Á milli dagskrárliða gæddu gestir sér á léttum veitingum, en hún Steinunn Diljá Högnadóttir reiddi fram ljúffengar veitingar sem vöktu mikla lukku.

Þegar leið á kvöldið tókst að rífa upp fjörið í Edinborgarsalnum þar sem þau Dagný Hermannsdóttir og Guðmundur Hjaltason lokuðu hátíðinni með því að flytja nokkur vel valin stuðlög og tryggðu að gestir gengu út í haustkvöldið með bros á vör.

Krabbameinsfélagið Sigurvon lýsir yfir miklu þakklæti til allra þeirra sem lögðu hönd á plóg og samfélagsins á Ísafirði fyrir þann mikla hlýhug og velvilja sem sýndur var í verki í gærkvöldi.

 

Reynslusaga Freygerðar lét engan ósnortinn.

 

Skúli mennski hreif alla með sér í flutningi sínum.