
Ísfirðingar og nærsveitungar létu rigningu og kulda ekki á sig fá og þrömmuðu hátt í 50 kílómetra samanlagt á Styrkleikum Krabbameinsfélags Íslands og Sigurvonar á laugardaginn. Viðburðurinn var smærri í sniðum en ætlað var vegna veðursins en skipuleggjendur eru samt í skýjunum með hvernig til tókst. „Það sem situr eftir hjá mér eftir vel heppnaða Styrkleika er fyrst og fremst öll hlýjan í samfélaginu og hversu mikil samstaðan er. Þrátt fyrir leiðinlegt veður lét fólk það ekki stoppa sig, heldur klæddi sig vel og gekk af stað,“segir Rakel Ýr Sigurðardóttir hjá Krabbameinsfélagi Íslands og einn af skipuleggjendum Styrkleikanna.
Styrkleikarnir eru alþjóðlegur fjölskylduvænn viðburður og eru öllum opnir sem vilja sýna stuðning í verki fyrir einstaklinga sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendur þeirra. Skorað er bæði á lið og einstaklinga að ganga vissar vegalengdir til að sýna fram á hversu miklu er hægt að áorka þegar margir taka sig saman. Á styrkleikunum á laugardaginn voru þrjár vegalengdir í boði og þar af ein innandyra í íþróttasalnum á Austurvegi en enginn nýtti sér það og þrammaði fólk í gegnum polla og hvassviðri til sýna stuðning í verki.
Um kvöldið var síðan efnt til ljósastundar þar sem Sr. Fjölnir Ásbjörnsson hélt smá hugvekju áður en kveikt var á bréfapokum sem fólk hafði skrifað á til ástvina sem glíma hafa við krabbamein eða fallið hafa frá vegna sjúkdómsins hvatningu, minningu eða kveðju. „Það var bæði fallegt og hugljúft að sjá ljósin lýsa upp myrkrið og finna fyrir þeirri samstöðu, hlýju og kærleika sem ríkti á þessari fallegu stund. Styrkleikarnir á Ísafirði sýndu svo sannarlega hvað má áorka þegar samfélag stendur saman. Við erum þakklát öllum sem tóku þátt, lögðu hönd á plóg og gerðu daginn að þeirri fallegu upplifun sem hann var,“ segir Rakel.
Krabbameinsfélagið er í samstarfi við Global Relay for Life, samtaka í eigu ameríska krabbameinsfélagsins, til þess að geta haldið viðburðinn sem á ensku heitir Relay for Life, hér á landi. Viðburðurinn hlaut íslenska nafnið Styrkleikarnir en það er orðaleikur og minnir okkur á styrkinn sem við finnum í samstöðunni, við það að ganga saman til að standa með fólki sem hefur verið snert af krabbameini. Þetta er í fyrsta sinn sem þeir eru haldnir á Vestfjörðum en Relay for Life fer fram árlega á yfir 5000 mismunandi stöðum í yfir 30 löndum um allan heim. Hátt í 10 milljónir taka þátt í viðburðinum á hverju ári og fer sá hópur stækkandi.
