Styrkleikar Krabbameinsfélags Íslands verða haldnir á Ísafirði laugardaginn 26. september við íþróttahúsið á Torfanesi. Viðburðurinn hefst kl. 12 og stendur yfir til kl. 21.
Þetta er í fyrsta sinn sem Styrkleikarnir koma til Ísafjarðar og því er um að ræða einstakt tækifæri fyrir Vestfirðinga til að sameinast um mikilvægt málefni, sýna stuðning og standa með þeim sem hafa greinst með krabbamein.
Styrkleikarnir eru fjölskylduvænn og aðgengilegur viðburður, þar sem þátttakendur skiptast á að ganga ákveðna leið á sínum eigin hraða. Styrkleikarnir eru táknræn áminning um mikilvægi stuðnings og samstöðu.
Heiðursgestir Styrkleikanna eru þau sem hafa greinst með krabbamein og verður sérstök dagskrá tileinkuð þeim. Á meðan á viðburðinum stendur verður einnig boðið upp á fjölbreytta dagskrá fyrir alla aldurshópa.
Viðburðurinn er opinn öllum og þátttaka er ókeypis.
Stór eða smá lið – allir geta verið með
Við skorum á alla hópa, fjölskyldur, vinahópa, fyrirtæki, félagasamtök og aðra að koma saman og skiptast á að ganga á Styrkleikunum. Við hvetjum líka alla einstaklinga til að taka þátt, því allir geta verið með.
Það eru þátttakendurnir sem gefa Styrkleikunum lit og skapa stemninguna. Þetta er frábært tækifæri til að safna fólki saman, styrkja tengslin og deila sameiginlegri upplifun.
Alþjóðlegur viðburður
Styrkleikarnir eiga rætur að rekja til hins alþjóðlega Relay For Life, sem haldið er árlega á yfir 5.000 stöðum í meira en 30 löndum um allan heim. Tugir milljóna hafa tekið þátt í sambærilegum viðburðum í gegnum tíðina.
Krabbameinsfélag Íslands gekk til liðs við Global Relay for Life samtökin og öðlaðist þar með rétt til að halda Relay for Life hér á landi. Íslenska heitið, Styrkleikarnir, vísar til þess styrks sem við finnum í samstöðunni – þegar við göngum saman og stöndum með fólki sem hefur orðið fyrir áhrifum af krabbameini.
Nú er komið að Ísafirði.
Laugardaginn 26. september sameinumst við á Torfanesi og sýnum í verki að við stöndum saman. Hvort sem þú kemur með fjölskyldunni, vinahópnum, vinnufélögunum eða bara sjálf/ur – þá skiptir þátttakan máli.
Allar nánari upplýsingar um Styrkleikana má finna á krabb.is/styrkleikarnir.is og hjá Sigurvon.