
Martha Kristín Pálmadóttir var endurkjörin formaður á aðalfundi Sigurvonar í síðustu viku. Er það þriðja árið sem hún sinnir formennsku en áður var hún gjaldkeri félagsins í nokkur ár. Stjórnin helst óbreytt fyrir utan að Ólafur Guðsteinn Kristjánsson bauð ekki kost á sér aftur sem varamaður svo í hans stað kemur Pernilla Rein inn. Stjórnin því skipuð Fjölni Ásbjörnssyni, Hjördísi Þráinsdóttur, Davíð Birni Kjartanssyni og Elísu Stefánsdóttur auk Mörthu. Varamenn eru Heiðrún Björnsdóttir og Pernilla Rein. Á aðalfundinum kom jafnframt fram að fjárhagsstaða félagsins væri góð, ekki síst vegna dyggilegs stuðnings velunnara þess, og starfið gengur vel.
Ársskýrsla stjórnar var svohljóðandi:
Starfsemi Sigurvonar var með mjög venjubundnum hætti árið 2025. Hreyfihópur Sigurvonar hóf æfingar í byrjun júní og var það fimmta sumarið hans. Hreyfihópurinn er starfræktur fram að Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka í ágúst. Upphaflega var hópurinn hugsaður til að styðja við bakið á þeim sem hlaupa til styrktar Sigurvon í maraþoninu en það er ekki skilyrði. Þátttakendur taka þátt á sínum forsendum undir tilsögn Árna Heiðars Ívarssonar, einkaþjálfara og hlaupara með meiru.
Sigurvon efndi til fjölskylduhátíðar við félagsheimilið á Patreksfirði í ágúst. Til stóð að grillað yrði úti við leik og fjör en veðurguðirnir vildu heldur bjóða upp á slagviðri svo hátíðin var snögglega færð innandyra með aðstoð og góðvild starfsfólks félagsheimilisins. Boðið var upp á grillaðar pylsur, tónlist og fjör. Með hátíðinni vildi stjórn Sigurvon þakka þann hlýhug og velvilja sem samfélagið hefur sýnt félaginu um leið og hvatt var til hreyfingar og skemmtunar fyrir alla fjölskylduna. Og á sama tíma kynna félagsstarfið á sunnanverðum Vestfjörðum sem bættist við starfssvæði félagsins eftir sameiningu

við Krabbameinsfélag Vesturbyggðar og Tálknafjarðar (KVOT) árið 2023.
Haldið var aðventukvöld í bryggjusal Edinborgarhússins á Ísafirði í desember sem ætluð var sem kyrrðarstund í amstri jólanna. Keyptar voru veitingar frá Edinborg Bistro og í staðinn lögð áhersla á heimatilbúin skemmtiatriði frá stjórn Sigurvonar. Gjaldkerinn, séra Fjölnir Ásbjörnsson, flutti fyrst hugvekju. Að henni lokinni flutti hann nokkur jólalög ásamt formanninum Mörthu Kristínu Pálmadóttur og ritaranum Hjördísi Þráinsdóttur við kertaljós og jólaskreytingar. Gestir snæddu sér á smákökum og heitu súkkulaði með meiru og hafði einhver orð á að eina stjórnin sem hefði mögulega geta skilað betri skemmtiatriðum hefði verið Stjórnin með þeim Siggu Beinteins og Grétari Örvars í fyrirrúmi.
Tæplega ein og hálf milljón króna söfnuðust í áheitasöfnun fyrir Sigurvon í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka í ágúst. Alls bárust 266 áheit á þá sem hlupu í þágu félagsins.
Sigríður Sverrisdóttir og Elín Magnfreðsdóttir fengu heiðursslaufur Sigurvonar í bleikum október. Stjórnin ákvað að heiðra þær fyrir dygga og langa þátttöku í stuðningshópnum Vinum í von en þær hafa mætt nánast í hvern einasta hitting í árafjöld.
Þá hittast stuðningshóparnir Vinir í von og Karlavon reglulega yfir vetrartímann en um er að ræða samverustundir krabbameinsgreindra og aðstandenda þeirra. Nokkur nýliðun var í hópnum í ár en öllum félögum er hjartanlega vel tekið.