
423.000 krónur söfnuðust í þágu Sigurvonar í nýliðnu Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka. Fimmtán hlauparar söfnuðu samtals 76 áheitum. Sigrún Ólafsdóttir safnaði mestu, eða 161.000 krónum, og því næst kom Freyja Óskarsdóttir með 122.000 krónur. „Fyrir hönd Sigurvonar færi ég hlaupurunum okkar og öllum þeim sem veittu áheit innilegustu þakkir. Þetta flotta framtak sýnir samstöðu sem skiptir okkur öllu máli. Stuðningur ykkar gerir okkur kleift að halda áfram að styðja við bakið á þeim sem á þurfa að halda,“ segir Martha Kristín Pálmadóttir, formaður Sigurvonar.
Frá árinu 2007 hafa þátttakendur í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka getað hlaupið til styrktar góðu málefni. Heildarupphæð áheita sem hafa safnast í tengslum við Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka frá því áheitasöfnun hófst er nú komin yfir 1.064 milljónir. Tugir miljóna hafa safnast til á annað hundrað góðgerðafélaga í tengslum við hlaupið ár hvert. Upphæðirnar smáar sem stórar hafa skipt félögin miklu máli og verið notaðar í mörg þörf verkefni. Eitt af stærstu markmiðum Sigurvonar er að jafna búsetumun Vestfirðinga sem þurfa að sækja sér læknisaðstoðar utan heimabyggðar með því að endurgreiða gistikostnað meðan meðferð stendur. Slíkt væri ekki hægt án stuðnings velunnara á við hlauparana á laugardaginn.
Allar nánari upplýsingar um Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka má finna á vefnum rmi.is.