Samhæfingarstöð krabbameinsskimana tekin til starfa

Skjáskot af síðunni
Skjáskot af síðunni

Sett hefur verið á fót Samhæfingarstöð krabbameinsskimana. Meðal verkefna hennar er að boða konur í reglubundna skimun og veita upplýsingar um niðurstöður skimana. Samhæfingarstöðin heyrir undir Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins en starfar á landsvísu. Við hjá Sigurvon hvetjum félagsmenn okkar til að kynna sér það breytta fyrirkomulag krabbameinsskimana sem tók gildi um áramótin að þær færist frá Leitarstöð Krabbameinsfélagsins til sjúkrahúsanna og heilsugæslunnar. Á vef samhæfingarstöðvarinnar er að finna bæði upplýsingar um tímabókanir og hvernig framkvæmd þeirra er.

Vefsíða samhæfingarstöðvar krabbameinsskimana